09.07.2007 11:25:40 / gunni
Ég er fluttur á:
http://theicetroll.blog.is
njótið vel!
»
05.07.2007 14:50:41 / gunni
Hæ, vildi bara segja ykkur að ég væri enn á lífi...
»
20.12.2006 11:36:45 / gunni
Ég bjó til skemmtilega netþraut, endilega takið þátt og sjáið hvað
þið getið
http://www.hi.is/~gunnast/
kv. Gunni
»
18.12.2006 09:25:38 / gunni
Jú jú, maður á víst afmæli í dag. Það gerist c.a. einu sinni á ári
að jafnaði!
Annars fórum við fjölskyldan í sumarbústað um helgina. Kíktum í
Skálholt og láum þar í leti, það var bara dásamlegt. Tókum með
okkur jólaseríur og settum upp í gluggana og svo var bara slappað
af. Fórum oft í heita pottinn, það er ekkert smá næs að liggja í
heita pottinum í 15 stiga frosti og stara upp í stjörnubjartan
himininn (við þurftum reyndar að vera með húfur, því það var svo
kalt). Svo voru norðurljósin brjálæðislega flott líka.
Kíktum í B&L á föstudaginn og keyptum bíl, skiptum frúarbílnum
út fyrir annan betri
Stjörnur tindra stillt og rótt
stafa geislum björtum.
Norðurljósin loga skær
leika á himni svörtum.
Jólahátíð höldum vér
hýr og glöð í desember,
þó að feyki snjó
þá í frið og ró
við höldum heilög jólin.
Heilög blessuð jólin.
Hilsen, Gunni
āĖēϲĀ晦〰㘶
»
11.12.2006 23:23:14 / gunni
Jæja, þá er maður orðinn heimsfrægur á Íslandi... eða þannig
kv. Gunni
»
27.11.2006 10:46:45 / gunni
Sælt veri fólkið, ég fór austur á Eiðar á föstudaginn til þess að
kenna þar á fermingarbarnamóti. Þegar austur var komið kom í ljós
að ekkert vatn var að fá á kirkjumiðstöðinni við Eiðavatn vegna
þess að nokkrum dögum áður hafði verið 17 stiga frost og allt vatn
frosið í leiðslunum. Þar af leiðandi urðum við að fara með hópinn
eitthvað annað. Endaði þetta með því að við fórum með allt liðið á
Alþýðuskólann á Eiðum, byggingar sem ekkert eru notaðar nema rétt
yfir sumarmánuðina þegar hótel Edda er með rekstur á svæðinu,
annars stendur þetta bara tómt!
Jæja, kom heim á lau og tók því rólega. Sunnudagaskóli í gær og
hefðbundin sunnudagsafslöppun. Er heima í dag því litla prinsessan
er með svo mikið kvef og ljótann hósta að við ákváðum að hafa hana
heima.
Hilsen...
»
22.11.2006 23:21:33 / gunni
Ég er að deyja ég hlakka svo mikið til jólanna. Þetta er
náttúrulega ekki eðlilegt, það er bara ennþá nóvember en ég er
meira að segja farinn að kíkja á smákökuuppskriftirnar til þess að
ákveða hvaða sortir ég ætla að baka (ég er náttúrulega bara
kelling)!
Er meira að segja búinn að downloada jólalögum í símann minn til
þess að nota fyrir hringitóna, ég verð sjálfsagt búinn að fá
hundleið á jólunum loksins þegar þau koma...
heil
Gunni
»
13.11.2006 13:56:06 / gunni
Líklegast verður maður að halda áfram að skrifa hér, því ég var
ekki fyrr búinn að setja inn nýja færslu í gær að það var komið
comment! (Takk fyrir það Ingunn mín

)
Annars er maður bara núna staddur í vinnunni að vinna aldrei þessu
vant. Á morgun á gamli vinnustaðurinn minn (Leikskólinn Maríuborg)
afmæli þannig að maður verður að kíkja í heimsókn þangað með
gítarinn, það verður nú gaman að hitta krakkana og svoleiðis.
Ég er farinn að hlakka geðveikt til jólanna, get hreinlega ekki
beðið eftir að þau komi... (er meira að segja farinn að syngja
jólalög í laumi)
Adios
»
12.11.2006 13:36:21 / gunni
Þetta er nú alveg spruning um að leggja þessari síðu fyrst maður er
svona hrikalega latur við að blogga! En eins og áður hefur komið
fram þá er ég meira í því að taka myndir og setja inn á vefinn á
flickr vefsvæðinu sem er alveg magnað svæði!
love u
»
28.06.2006 17:28:11 / gunni
Þá er maður kominn á Laugarvatn eina ferðina enn. Ég verð hér til
10.júlí að starfa í sumarbúðum ÍF (íþróttasamband fatlaðra). Hér er
gaman að vera og heilmikið fjör. Ekki er nú veðrið alltaf að leika
við okkur en það gerir svo sem ekki mikið til.
Við fjölskyldan fórum í eina stutta útilegu í Reykholt í
Bláskógarbyggð um daginn og var það ljómandi fínt. Börnin nutu sín
vel og var Steingrímur Ingi farinn að spyrja áður en við komum heim
hvenær við förum í næstu útilegu. Vonandi verður ekki mjög langt í
það.
Hilsen
Gunni
»
17.06.2006 20:17:52 / gunni
Það er eins og maður hafi gufað upp! Allavega hef ég ekki
verið duglegur við að blogga upp á síðkastið, hinsvegar hef ég
verið nokkuð duglegur við að taka myndir og birta þær á myndsíðunni
minni hjá Flickr. Annars er það að frétta að við fjölskyldan fórum
til Mallorca í maí með Hauki, Ósk og sonum ásamt föður mínum og var
það stórkostlega gaman

Ég er búinn að fá nýja vinnu og mun ég hefja störf sem
æskulýðsfulltrúi Grafarvogskirkju þann 1.ágúst næstkomandi.
Annars er ég bara í stuði, hvað með ykkur?
Gunni
»
08.04.2006 23:06:12 / gunni
Hef verið mjög latur við að blogga upp á síðkastið en í staðin hef
ég verið þeim mun duglegri að taka myndir og setja inn á síðuna
mína (www.flickr.com/photos/theicetroll)
Beðist er vélmyrðingar á þessu
Gunni
»
01.04.2006 23:52:26 / gunni
Ég var að spila á tónleikum núna í kvöld í Hvítasunnukirkjunni
Fíladelfíu hér í borg. Þetta voru stórskemmtilegir tónleikar og var
mikið rokk og ról. Það var nærri fullt hús og var alveg þrælmagnað
að fá að spila á tónleikum þar sem var topp söngvarar, topp band og
topp sánd. Algjör toppur
Gunni
p.s. minni enn og aftur á myndasíðuna mína:
http://www.flickr.com/photos/theicetroll
»
28.03.2006 13:48:25 / gunni
Var að kaupa mér nýja myndavél

Gripurinn er Canon 350D með 18-55mm linsu, Battery Grip.

Það
sem er skemmtilegast við þetta er að ég get notað gömlu linsurnar
mínar af EOS 500 vélinni minni og flassið þannig að nú fer maður að
skella myndum inn á flickr á fullu

Myndasíðan er :
http://www.flickr.com/photos/theicetroll
góðar stundir
»
19.03.2006 20:25:21 / gunni
Af hverju er það alltaf þannig að þegar maður er að taka bensín þá
reynir maður að hitta á heilt eða hálft þúsund? T.d. 3000 kr.
Ég var að taka bensín í dag og gleymdi mér aðeins, ætlaði að taka
fyrir 5000 kr en fór óvart í 5123 kr eða þar um bil. Þá var
auðvitað ekkert annað í stöðunni en að fara í 5500 kr því ekki fer
maður að borga 5123, það er eitthvað svo óþægileg tala!!! Reyndar
hef ég stundum verið að leika mér að taka bensín fyrir tölur sem
hljóma vel, t.d. 5555 kr eða 5005 kr, þannig gengur alveg að
taka fyrir 4321 kr (því maður fær svo lítið bensín fyrir 1234 kr
(nema maður eigi Fiat Uno, þá væri tankurinn nefnilega
fullur). Takið þið bensín fyrir hvaða tölu sem er?
kv.Gunni
»
Síður:
1 2 3 ...
14